|
|
23.09.2007 22:07:11 / elin ardis
heyja & amen. Weell, þar sem ég er eiginlega bara orðin ein á báti með þessa blessuðu síðu, er ég komin með nóg af henni !! þannig ég leit á björtu hliðina og gerði NÝJA ;D Elín = Truntan --- > no,no not anymore
www.blog.central.is/ardisin = yeap Annars, Takk fyrir mig hérna, þetta verða ógleymanlegar stundir .. ;-D það verður alltaf að vera smá drama með **hilsen Elín Árdís =) 
»
18.09.2007 16:34:49 / elin ardis
Góðan Dag 
Ég sit hérna í hnút í
maganum yfir líðandi viku sem er að fara með mig!! Það er einhver
ógeðsleg fluga hérna að fljúa á mig og í kringum mig og það er ekki
langt í að ég teyji í mig svo sem eitt stykki flugnarspaða og
slátri henni á staðnum!! En seisei, næstu fimtudagur ?
áheyrnarprufur í leiklist, elín árdís björnsdóttir þarf að láta
ljós sitt skína ?? .. ég veit ekkert hvað ég að gera, hvernig eg á
að vera á svipinn eða hvort ég á hreinlega að anda !! þetta er e-ð
sem er ekki alveg fyrir mig, okey ég gæti alveg gert e-ð, sungið
e-ð lag ef allir aðrir myndu syngja það sama!! En þar sem að ég
þarf að fynna þetta sjálf upp er ég alveg stopp í hugmyndafluginu
sjáðu til ...
Ég tók nokkra hjólatíma um helgina og er
komin með æfingaleifið á vespuna mína múhahah, hún er KOMIN
& hún er svo ýkt flott að ég bara get ekki hægt að hugsa um
hana .. skær gul, með kassa, krómgólfi, fjarstarti ÖÖÖSKRANDI
þjófarvörn og lyklarnir eru svona eins og af nýjustu skodunum,
maður ýtir á takka og lykillinn hoppar alveg út ... en neei, það
skrölltir e-ð inní hennig og Kári og Kiddi ætla að rífa hana í
sundur og reyna að líta e-ð á þetta!! :] Gott að eiga góða að
En þessi helgi var helvíti
fín .. kíkti í Staðarrétt með Bigga, Línu, Helgu Belgu Unu Bunu
Bjössa Bolludóttur og Öllu þar var Hannes greyjið traðkaður
niður af hrossum réttarinnar ..en nágrannar hans sáu nú um að hann
þyrfti ekki að standa sjálfur á fætur Seinna um kvöldið kíldi
Smári Hallmar úr sér helming hægri framtannar með hjálp Jóns Antons
svo þessi dagur var helvíti skrautlegur ;] Þegar leið á kveldið
fóru nú auðvitað allir á réttarball í Melsgili,
nema ég .. góða stelpan hans pabba síns sem var nú bara heima að
passa.. :]
Sunnudagurinn var rólegur,
ég kíkti á rúntinn með Söru og Hjörleifi, við kíktum í kaffi til
Steinunnar og Dóra og fengum að sjá nýjasta Kjartaninn, þar að
segja litlu prinsessuna sem Kjartan Hlíðar kallar líka Kjartan,
haha, frekar fyndið ;’D .. En hún er rosalegt krútt =) En svo fór
ég bara heim í Raftahlíðina, lærði smá, lagði mig, hjálpaði við
heimilisstörfin, og borðaði svo þessa dýrindis pizzu sem Þórey og
Lilja bökuðu (: En jæja, þetta er komið ágætt í dag :] ætla að fara að
gera e-ð að viti 
Bæjó! –Elín Árdís
:]
»
10.09.2007 20:06:30 / elin ardis
 Hæbb! Langaði skyndilega að blogga, líklega vegna þess að ég nenni að gera ALLT annað núna en að læra heima?!. þar að segja lesa heilan kafla í Grettlu ?.. ég gæti alveg eins tekið hann á þýsku sem ég var einmitt að læra í dag, og ég myndi alveg skylja jafn mikið!! En þegar ég tala um þýsku, þá skellti ég mér í fyrsta þýskutímann í dag, og hann gekk jú svona upp og ofan, ég var ekki alveg að ná þessu, en þetta kemur, ætla bara að sitja á milli Bödda & Reynis frændra minna í vetur, þeir ætti að geta útskýrtt þetta fyrir mér áfram eins og í morgun En jæja, síðasta vika ?! hún var skítsæmileg, ég var búin að bíða í held ég tvær vikur eftir lyklunum af honum Gulla mínum [vespunni] svo loksins komu þeir á miðvikudagjinn síðasta, ég og hópur karlmanna ásamt Línu líka skelltum okkur á Eyrina og við Kári prufukeyrðum hana... gaman á þessu, þangað til að kom í ljós að það var e-ð ónítt í mælaborðinu, þannig ég fæ aðra núna í vikunni með kraftpústi, krómgólfi og e-u öö? fjarstarti eða e-ð.. æji skildi þetta ekki, kemur í ljós, í staðinn!! =) neinie, ekki var það nú verra.. allaveganna ekki fyrir mig sem er svona frekar líkari föður mínum en móður að eðlisfari..sem sagt frekar óstressuð Mamma & Pabbi eru svo að fara eitthvert til útlanda á fimtudagjinn þannig ég verð hjá henni Völlu vinkonu í eina 10 daga í pössun, sjáum hvernig það kemur til með að ganga btw, þá buðu þau gömlu mér á rúntinn fyirir örskömmu hérna áðan, ég spurðu nú svona að kurteisi hvert ferðinni væri heitið..en ofbauð nú svarið því það átti víst að kynna fyrir mér Háholt!! pabbi sagðist ætla að leyfa mér að skoða herbergin þar.. ég var nú ekkert alveg að kingja þessu djóki í foreldrunum sem geta jú stundum alveg verið fyndin, en spurði nú svona hvað þau væru samt að fara að gera þarna? þá þurfti mamma bara að sækja einhverja plöntu held ég ! En göngurnar vorum um helgina í Kolbeinsdalinn, ég komst ekki í þær sjálfar, var að vinna á laugardagjinn, en fór yfir í Brimnes um kaffileitið með Helga & Jantoni, svo keyrði Jón Gunnar mér uppí Fjall og ég reið þaðan niður í rétt Kynntist hinu fínasta fólki þegar við vorum í þann mund að basla einni rollunni sem var uppgefin, og komst ekki í kindauppgjefandabíllinn sjálf, á hestbaki svona hálfan kílómeter niður að bíl.. þegar við náðum hópnum aftur var hann kominn upp að girðingu !! þetta gekk allt svo bara vel niður að rétt  Fórum svo heim í Brimnes, borðuðum steik hjá Mæju og slökuðum svo á í stofunni, jón gunnar, haffí og ingvi komi í heimsókn og það var spjallað fram eftir nóttu Svo fórum við að sofa og e-ð varð Ragnhieður vör við Snorra á spjallinu þar sem við sváfum fimm værum svefni í stofunni Vöknuðum svo snemma allir rifu sig annað hvort í fjárhús eða fjós, ragnheiður keyrðu um heimreiðarnar á eldgamalli dráttarvél eins og níræð kjelling á hundraðinu, og lokaði hverju hliðinu á fætur annars okkur brá einnig helling í brún þegar vélin fór bara sjálf í gang, jóin gunnar var ekki lengi að spretta uppá hlað uppí vél, en þá var hún ekkert í gangi, kom ekki ragga á hinni vélinni, eins og enginn væri morgundagurinn og við gjörsamlega misstum okkur úr hlátri :'D Réttirnar byrjuðu um tíu leitið og gengu bara vel fyrir sig, Ragnheiður var ekki hlaupin niður af kind í þetta skiptið og svo rákum við heim um hálf tvö leitið þegarvið komum heim...rétt búin að stíga af baki kom bakka fólk með sitt fé í gegn, enginn tilbúinn og allt fór í panikk, við misttum hrossin og féið hljóp e-ð ´niður á tún, við Steinka stuð tókum til fótanna, og ég held ég hafi aldrei fyrr náð svona hraða áður í gönguskóm en við komumst allavega fyrir þetta og svo gekk þetta ágætlega en hægt fyrir sig =) En ég er komin með störu á fermingarkertið mitt hérna, ég nenni ekki að hafa þetta lengra! veriði öll margblessuð! ;* -elin ardis!
»
04.09.2007 20:12:56 / Lína
»
24.08.2007 22:54:34 / elin ardis
!
Sæl=) Kominn tími á blogg... nenni varla að blogga.. en ég verð að gera e-ð hérna svo þessu síða rotni ekki!! En jæja! skólinn er byrjaður, spennan í hámarki og ég veit bara ekkert hvað ég á að gera þegar skólinn er búinn á dagjinn... nei ekki alveg! eftir skóla ríf ég mig þegar ég nenni út á eyri og reyni að safna mér pening fyrir vespunni gríðarlegu En.. síðasta helgi?!.. man ekkert hvað ég gerði þá..eða jú, á fösudagjinn komu Hjalli & Hannes, Sindri, Jakob & Aggi gella á krókinn og við rúntuðum ...& ingvi líka . Landbúnaðarsýningin var í fullum gangi þannig að ég var að vinna, og jájá, það var fínt, allavega tussaðst eins & Sara mása myndi orða það ;P Svo kom nú laugardagskveldið, við rúntuðum e-ð smá, envið Kobbi kröllz fórum bara snemma heim að sofa... ég spjallaði mikið við mömmu um nóttina þar sem ég fékk að kúra uppí hjá henni að orðsökum gestagangs... & já, ég hélt ræðu við ýmindaðan vin minn í hurðargættinni =D ____________________________________________ Eeeen.. á morgun! mfl hittingur, ég hlakka mikið til eigum að mæta í 80's? dressinu, þannig við halla fórum smá verslunarhring í ''mollum'' bæjarins, þar að segja í tískó og skaffó :] okey, það endaði vel sko, við stöllur fundum okkur e-ð sem okkur hentaði & fórum kátar heim á ný =).. er að setja myndir frá minni frábrugðunu verslunarmannahelgi.. hún var skemmtileg .. þær koma bráðum! En vá, þetta er ömurlegt blogg, er hætt þessu, þetta er leiðinlegt, lína u átt næsta blogg?!..vil eitt almennilegt gamla! :] BYE! nile hislen ;* 
»
15.08.2007 17:21:31 / elin ardis

Jæja, blogg á kantinn
?!..
Byrjum á Versló, sem var skemmtilegasta versló
sem ég hef upplifað...hún varð allavega alltaf skemmtilegri &
skemmtilegri eftir því sem á hana leið, allavega var það grettisbað
á föstudegjinum.. sigló á laugardagskveldið, hittum Grétar
snilling, frænda Hannesar, & vistarbróður Hjalla... & svo
var riðið í Ábæjarmessu á sunnudegjinum & ball með Geira í
Árgarði ´´a sunnudagskveldið .. GAMAN,
GAMAN! :] En nú jæja, svo kom erfið & þreitt vinnuvika,
en það sem hélt mér á lífi var tilhlökkunin til næstu helgar sem
var framundan, eða FISKIDAGANNA á
dalvík ;P.. Sóla mamma Ingva var helgarmamma mín og með þeim bestu
hingað til..allavega var hún ekkert mikið að skipta sér af okkur
..
En ferðin byrjaði með Stuði á litlu
þotunni hennar Krissu frænku...
ég & Ragnheiður vorum meðferðis :] það var hlegið mikið
& spjallað þangað til að sú hressa henti okkur &
dýnunum, töskunum tveim, koddunum & auðvitað svefnpokunum
út á S.Ó skálanum, þar sem Hannes, Sindri & Janton biðu
okkar... ekki alveg með brosið a vörunum, en það slapp
..
Við fengum okur að snæða og fórum svo bara snemma
í háttinn, ég Ragga, & Ingvi, þegar mikil rifrildi um hver
fengi að sofa í miðjunni höfðu átt sér stað... ég meina, ég veit að
þið viljið bæði vera mér sem næst .. en vá, það er hægt að
einfalda hlutina ;P
Ég vaknaði svo við þessi sveitagerpi klukkan
hálftíu á laugardagsmorgun ?!.. Ragnheiður
says ; ætla að fara að pissa!¨.. nokkrar mínútur líða..
Ragnheiður ; VÁ INGVI, ÞAÐ ER FULLT AF BERJUM
HÉRNA..!!!! MHMMM <3<3 LOVE'IT! ..
Jæja, þá var farið í Samkaup með jóni gunnari, og
haffí og við keyptum okkur djúsí snúða og kókómjólk í morgunmat
.. fórum svo í hið langþráða sund..
:]] vorum þar í c.a tvo klukkutíma, og fórum svo heim í hjólhýsi og
lögðum okkur, ekkert nema stuðið var framundan þegar við risum á
fætur.. eða þegar þau skötuhjúin náðu mér loks á fætur... trítluðum
niður á bæ.. & ég knúsaði Matta í pöpunum í tilefni
knúsudagsins .. keyptum okkur svo eina djúpa pylsu eftir að ég
hafrði útskýrt mína venjulegu djúpsteikta pylsu fyrir drengnum á
S.Ó sjoppunni?1..

Ein ný
vöknuð!!

Ingvi sexy að klæmast e-ð
í tjaldinu sínu 
Gaurinn
; Hvað viljiði hafa á pylsunni ? .. Elín ; bara þetta venjulega ?
gaurinn ; já, semsagt tómat, sinnep, remólaði og steiktann lauk ?
Elín ; neeei !?!? kál,
hamborgarasósu, ost og seasonal .. já, ókey, þetta var semsagt
ekki venjulegt á dalvík.. við hneyksluðumst örlítið , haha! ..
líka ólafsfirðingastelpurnar, Anna & co, sem ég vissi ekkert
hver var, en jæja, alltaf gaman að kynnast nýju fólki
;]]
Svo fórum við heim til Ásu systur mömmu Ingva sem
býr á Dalvík, lögðum okkur aðeins aftur.. og gerðum okkur svo sæt
& fín fyrir kvöldið .. Fórum niður í bæ, hittum Gunnu Betu,
Lilju & Örnu.. á meðan að strákarnir flúðu okkkur bara ..
Svo kom Hjalli í dallas, og svo hannes & sindri Við kíktum
inn á Geira sem aldrei klikkar, og hannes varð alveg öskuvondur
þegar ég kallaði ; JÓ... Hannes ? ..
án þess að fatta að það kæmi út jóhannes.. hélt bara að þetta væri
svona eins& Jó... elín .. en
þegar ég var í þann mund að elta hann um götum bæjarins, til að
biðjast saklausrar fyrirgefningar.. fljóp ég í fangið á Jóa .. á
eftir honum komu svo, Palli og Finnur =) .. eilíf hamingja, við
skemmtum okkur svo laaangt fram á nótt, þangað til að jói dró
hannes heim ... þegar nissan kagginn hafði gefið upp öndina i
dallas city!.. óhappabær, segjum það
nesi 
En svo var bara farið aftur í sund á
sunnudegjinum, & svo tókum við tjaldið saman, fórum á
Tommuna, þar sem eru
GÓÐAR pizzur <3 .. en skondin
afgreiðsla 
En jæja, það kom allaveganna blogg frá mér... er
í vinnunni, leiðist, langar heim ...að horfa á Just Merried með pabba, sem getur ekki beðið af tilhlökkun =D..
Segjum það!
Farvel, og en dejlig
hilsen,Elín Árdís
;P
»
01.08.2007 20:56:15 / elin ardis
[sætar að borða RIF í
svíþjóð]
HÆÆÆ!!! vorum að vinnafótbolta
leik í laaaangan tíma... & já, ég er í góðu skapi takk,takk
*klappklapp*
Tindast-Ks/leiftur ; 4-1 yeah 
En langaði bara að blogga.. langt síðan, er bara
búin að vera að vinna, sinna gestunum, skrapp á hestbak í gær..
& hjólaði nokkra hringi... passar vel saman, veit það ;].. Svo
var ég að mála íbúðina hennar Helgu Sjafnar, með henni, mörtu,
ernu, línu & hjalla.. sem hafði svona augsjón með þessu
öllu..það kom öðru hvoru svona ; oh,þessar stelpur!!'' =D.. það er
alltaf gaman að mála.. ;p doddi málari sagði líka í vinnunni í
morgun, þegar hann sá borðið sem ég málaði... að ég myndi líklega
sleppa í vinnu hjá honum næsta sumar? .. sjáum til með það..

FLOTT ÞETTA STELPUR ;P hahahaha :'D
En jæja, ég er að setja svergie myndirnar INN!!
þær koma von bráðar... & svo Júlí mánaðarins ;p .. nú lætur á
reyna hver verður commentari mánaðarins.. ? koma svo 
En VERÐ bara að setja SAKLAUSUSTU mynd í heimi af
okkur truntunum fylgja & kanski einhverjar fl 
bææ !! -elín árdís 
»
24.07.2007 23:14:38 / elin ardis
HæHæ!!
Trunturnar tvær eru komnar á
landið & eru ágætlega haldnar þannig séð ;P Þessi heimsför
okkar var helvíti mögnuð í alla staði.. en maður hefði samt alveg
til í að sofa aðeins betur, úr því að maður var nú í fríi.. !!
Fyrstu þrjár næturnar vöknuðum við ávalt á gólfinu, þá gáfumst við
upp, Sigurlína keypti sér dýnu.. en ég færðist til Möggu, sem var
eins & ormur flestar næturnar.. segjir vörubíllinn :'D .. en
já, við skiptum svo um skóla síðustu nóttina.. það færðist gleði í
spilið & tilhlökkunin engin smá því að okkur voru útvegaðir
svokallaðir ''BEDDAR'' okey, ég settist af dágóðum krafti í
hann & tókst því að brjóta eina spítuna ... við fyrstu nálgun
takiði eftir! en jæja, ég svaf á þessu svona brotnu & þetta var
ekkert að mýksta sem ég hef upplifað.. =)
Ferðin var skemmtileg, fórum í
Skara Summerland á laugardegjinum þegar við vorum ný komnar, það
var úber .. Sigurlína lét sig vaða í stærstu rennibrautina.. sem
var alveg bein.. en nei þakka ykkur fyrir, ég tók þá ákvörðun að
halda sundfötunum á sínum stað í þessum garði =D.. fór því bara með
Höllu á einhvern belg... sem var BRJÁLAÐ :'D HAHAHA.. gaurinn var
ný búinn að setja sápu á gervigrasið sem maður endaði á þegar maður
hafði farið niður rennibrautina & við halla fórum á 60km hraða
eftir gervigrasinu & DÚNDRUÐUM á stoppgirðinguna... halla flaug
yfir & ég á eftir henni & hún fékk blóðnasir en ég slapp..
nei ekki alveg ..en það munaði litlu að við færum yfir
girðinguna.. hahah :'D .. OF GAMAN DD
Á mánudegjinum var opnunarhátíð
GOTHIA CUP ..sem sagt mótsins sem ferðinni var heitið að fara áá...
.. það var mjög flott, dansadi fólk þarna eins & það hefði
gaman af því & hápunktur kvöldsins.. eins & stóð í sænska
mogganum, var þegar þýskur herramaður mætti á sviðið í jakkafötum
með rauða rós í hendi... hann útskýrði það að hann hefði kynnst
kærustunni sinni á þessari opnunarhátíð fyrir 10. árum.. & BAÐ
HANA SVO AÐ GIFTAST SÉR <3<3 .. hún auðvitað sagði já &
vá þetta var eitt það fallegasta sem ég hef séð, ég fékk alveg
GÆSABÓLUR.. & það var ekkert langt í tárin =) .. svo var
flugeldasýning & við fórum svo hjeemm í skólann :]]
Fyrsti leikurinn okkar var við
USA seventeen... á sandvelli í 25° hita & við vorum ekki lengi
að rífa okkur úr treyjunum í hálfleik úff, þetta var erfiður
leikur, ég hef aldrei átt svona erfitt með að bara hreyfa mig !!
töpuðum þessum leik 2-0 !!
Annar leikurinn okkar var við e-ð
sænskt lið... man sitt lítið af hverju úr þeim leik... en töpuðum
honum líka 2-0 .. stóðum okkur samt vel & börðumst til
lokaflautsins =) ..
Þriðji leikurinn var sá
ömurlegasti... allar drullu þreyttar, pirraðar útí hvor aðra &
bara allt í mínus.. þetta var klukkan tíou um morgunin & við
villtumst í einhverjum skógji & svo frv! tek ekki fram hverni
þessi leikur fór! tókum annan leik saman dag & vorum miklu
betri þangað til á lokamínutunni skoruðu þessar sænsku ''tíkur''
eins & Gauji orðaði það.. haha.. úr aukaspyrnu :'( já það var
grenjað, við trunturnar vorum samt frekar svona í
''huggunardeildinni'' ég get ekki grenjað yfir fótboltaleik satt að
segja, þetta er bara leikur come on! samt
ósanngjarnt!
Þegar við vorum ekki að spila
fótbolta.. eða versla & svona... vorum við í LISEBERG <3
...tívolíinu... hef aldrei upplifað eins mikla hræðslu & þegar
ég fór með Höllu í einhvern frumskógarrússíbana & við vorum
fremstar.. þegar vagninn stoppaði láku tár niður kinnarnar... ekki
grenjutár.. við bara fórum svo HRATT ;O samt það var bara gaman
íþessum rússíbana þegar ég fór í annað skiptið með línu... já, þá
var hlegið 
Svo skelltum við okkur í
einhverja sundlaug.. .tókum lest... & það var geðveik
rennibraut í þeirri laug maður .. haha, fórum allar á nokkurra
sekúndra fresti & það var ansi fyndið ..eða öörlítið
fyrndið..eins & Vanda vill hafa það..þegar stelpurnar flugu á
eftir hvor annarri úr í laugina við enda brautarinnar ... haha,
ýmsir svipir sem maður ALDREI hafði séð á þessum andlitum komi í
ljós =)
Já, við skelltum okkur einni á
sænskt DISKÓ... biðum í 2-3 ?? km langri röð... í TVO klukkutíma..
þangað til að við komumst inn & svei mér þá.. það borgaði sig
=D.. gömms af fólki þarna & allt úr sænskum borgarstrákum í
afríku & indverjamenn .. gaman, gaman ..
En ég fór í vinnuna eftir hádegji
í dag... allt var eins í venjulega..minnumst ekkert á hvernig það
var =).. fór svo á æfingu, ég var ansi þreytt á henni & ætla að
fara að sofa núna!
LEIKUR Á MORGUN Á MÓTI KA!!
VERÐUM AÐ VINNA STELPUR ;D við getum það ALVEG klukkan 20;00 á
Sauðárkróksvelli, mættu ;P
En já, ég er soðin af hita á
náttlkjólnum ný komin úr pottinum, sem er snilld... ætla að
leggjast til hvílu svo ég drepist ekki úr þreytu á mrg! Góða nótt,
það koma voonandi myndir úr Sweeden á næstunni ..
ELIN ARIDS :]

»
14.07.2007 12:33:33 / Lína
Ragga hérna við
tölvuna.. búin að brjótast inn á heimasíðu -truntanna-, það
verður allt vitlaust!!!
En annars.. lofaði ég að
blogga hérna á meðan þær stöllur eru í Sveden að hlaupa berar á
ströndinni & svitna í fótbolta Sigurlína væntanlega að
hözzla ljóshærða sænska gaura & Elín reynir að horfa framhjá
þeim & hugsar bara um rauða hárið á Hjalla 
Talandi um sænska gaura..
Þegar við vorum í einni lestarferðinni í DK. í vor þá stóðu 4
danskir gaurar fyrir aftan mig.. Þeir áttuðu sig á því að við vorum
ekki Danir & fóru mikið að tala um mig á dönsku sín á milli,
voru að spá í að klípa í rassinn á mér & fl.
Svo bara; Hún er pottþétt sænsk! Ég þarna extra blond
náttúrulega & pínu brún eftir sólina.. Mér fannst þetta frekar
fyndið svo ég öskraði e-ð eins hátt & ég gat á mjööög skýrri
íslensku, þeir fengu nú heldur betur sjokk & bara; Det var
ikke svenska!
& steinhættu þar af leiðandi við að klípa mig í
rassinn, héldu sennilega að ég væri pólsk & loðin undir
höndunum..
& þetta er eina sagan
sem ég kann um e-ð sænskt svo nú er sögustundin búin! 
En já, ég á eftir að koma
til með að sakna -truntanna- minna þessa 10 daga Gott að hafa
þessa Lýtó-pilta & Hannes til að stytta sér stundirnar 
En ég verð víst að drífa mig að halda áfram að hugsa um bóndans fé
& skreppa svo í Varmó & ná í Filippus & fá mér ís =D
Varmó ís stendur ALLTAF! fyrir sínu!!! 
Sjáumst bara
á balli í kvöld elskur Nema þessar 2 þarna í
útlöndum sem eru að reyna að vera hipp & kúl! Ekki gleyma að
kaupa e-ð fallegt handa mér & Söru af því við erum
aðalkommentararnir hér! JEEEE
BÆJÓ! =D



-HAHAHAH.. spáiði í því ef okkur
væri öllum blandað saman í einn líkama :'D Neðsti parturinn á mér,
miðjan á Elínu & efsti parturinn á Línu með sexý gleraugu :'D
Við yrðum náttúrulega ONE HELL LOT OF SEXY LADY!

..ein sæt í lokin! Haha við höfum aldrei verið svona saklaus á
ævinni!
-HEJDO, RAGGA!
»
12.07.2007 21:03:44 / elin ardis

hey guys! 
Jæja, það kemur líklega ekki eitt
stakt blogg í allavega 10. daga frá okkur =) ..Sara nú geturu alveg
misst vonina um að fynna e-ð nýtt hérna á síðunni ... hehe
=D..
En allavega heja svergie við
Línurnar / trunturnar ætlum að skella okkur til Svíþjóðar, soðna úr
hita, sveittar á völlum Gautaborgar & sparka í tuðru
..
Vildi bara kveðja svona ...eins
& almenn kurteisi ber til kynna :]
Bið líklegast bara að heylsa
ykkur !! ÞAÐ ER EKKERT BETRA EN AÐ SLEPPA VIÐ
VINNUNA NÚNA ...<3 munið það 
bæjó! ELINARDIS!

»
09.07.2007 01:37:38 / Lína
heyrðum heyrðu..
kannski maður bloggi svona smá
fyrst maður hefur e-ð lítið að gera og getur ekki
sofnað ...
Þó ég hafi e-ð lítið að
segja..
Helgin er bara búin að vera
ágæt ..
Föstudaginn var ég bara að vinna
til kl 18 og fór svo bara heim og beið eftir að Elín kæmi og Hjalli
næði í okkur ..
svo þegar Hjalli var mættur á svæðið þá fórum við í hlíðó og
keyptum blöðrur og e-ð dót svona svo við gætum gert e-ð skemmtilegt
því að hún elsku Ragga okkar varð víst 16 ára þennan dag enn og
aftur til hamingju með það elskan :*
Svo náðum við í Bigga og gripum hann með okkur í Kvistholt svo við
gætum farið að undirbúa óvæntu afmælisveisluna.. Drengirnir voru
settir í það að blása í blöðrurnar ... þegar allt var orðið fínt
og tilbúið þá var leið okkar haldið í Brimnes og náð í blessaða
afmælisbarnið :*
Stálum henni svo frá móður sinni og leiðinni var heitið aftur í
krókinn og svo fórum við með hana smá rúnt svona með bundið fyrir
augun .. létum hana fara hálfblinda inná shell og kaupa smokka
hehe..
Svo fóru þeir víst í hendurnar á honum Hjalla og maður veit ekki
til hvers hann ætlast með þá heheh..
En síðan fórum við bara í
Kvistholt og borðuðum nammi og horfðum á mynd... Svo hringi hún
Þórey i mig og hún náði í mig svo ég gæti látið bensín á bílinn því
hún er búin að gleyma pin.nr á kortinu sínu þannig ég reddað
henni
Rúntaði svo bara með henni og fleira fólki e-ð langt frammá
nótt..
Á laugardaginn var ég nú bara
heima að mestu áður en ég fór að vinna kl 18 og vann svo til 24 og
fór e-ð aðeins á rúntinn með Erlu.. svo var leiðinni heitið heim og
Elín kom til mín fórum svo að rúnta aðeins með Finn
Fór svo bara heim að sofa
Svo í dag fór ég bara að vinn og var að vinna til 18 og þórey náði
svo í mig .. fórum heim og svo í Brimnes með Röggu og Bigga
Fengum þennan dírendis mat hjá henni Mæju alltaf e-ð gott að
borða í Brimnesi.. hún Mæja klikkar ekki á því Kíktum svo við í
Hjaltastaði því þær systur þar eru víst orðnar stúdent Til
hamingju með það :* (aftur)
Rúntað svo bara aðeins áðan og
ligg núna bara uppí sófa í Grenihlíðinni því ég á víst að sofa hér
í nótt..
Maður er að kíkka í sveitina á morgun það verður nú
gott.. 
Svo er það leikur á morgun klukkan
18 hérna á króknum á móti Neista Mæta þangað 
Ætli maður láti þetta bull ekki
duga núna í bili
Þetta var bara ágætis
helgi
en ætla að henda hérna inn
einhverjum spurningum sem þið megið svara ef þið
nennið
.Hver ert þú?
Hvað heiti ég?
Erum við
vinir?
Hvenær hittumst við fyrst og
hvernig?.
Þykir þér vænt um mig ?
Hversu vel þekkiru mig?
Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú
valdir það.
. Höfum við ferðast saman
?
.Saknar þú mín?
Hefur þig einhvern tímann langað til að segja
mér eitthvað en ekki getað það?
Segi ég þér leyndarmálin mín
?
Segir þú mér þín leyndarmál?.
Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig
fyrst?
Hefur þú öskrað á mig?
Hefur þú sært mig, eða ég þig
?
.
Hefur þér liðið illa útaf mér
?
.
Hvað minnir þig á mig?
.
Hvenær sástu mig
síðast?

Það
er gaman að þessu..
ætla
að kveðja núna og er að spá í að fara bara að
sofa
Góða
nótt allir =**
Bless=**<3
»
03.07.2007 23:15:58 / elin ardis
Kvöldið!
Ætla að skella inn einu stuttu bloggi!
=)
Undanfarnir dagar ... hafa verið skýtnir.. en
auðvitað skemmtilegir =D.. helgin var skrautleg.. byrjaði
fösudaginn í lýtó, fór þaðan útá krók með Hjalla & Sindra...
tókum Bigga & Hannes með ... og svo ældi hannes :'D.. en allt
fór vel þrátt fyrir... öhm, hvernig þetta leit út hjá jarðpöddunni
Skelltum okkur í pottinn hjá Línu, það var stuð, tókum rölt á
leikskólann þar sem maður eiginlega byrjaði lífið & uppgötvaði
hvað félagsskapur var... án drengjanna þriggja í götunum
..
Svona leit þetta nokkurnveginn út =P

Allir slakir, allir slakir 

haha :'D

Veðrið var yndislegt =)

& hannes skrapp til læknis í dag & frétti
að hann væri með jarðvegspöddur í andlitinu :'D

Góðar stundir 

Skondið eða hvað 
Jæja, en svo er ég bara búin að vera
að vinna, ekkert merkilegt gerst, nema kanski að Pési er kominn
aftur, þá er lífið betra .. nema bara aldrei neitt að gera.. svo
kom Jónas.. betri útskýring afi Fannars F-boy... kom í heimsókn, ég
var farin að sakna hans svei mér þá =)
En svo skelltum við Lína
okkur í skaffó eftir vinnu, þurftum aðeins að versla förum
ekkert nánar útí það.. fórum svo í raftahlíðina & biggi
fræææændi kom.. eða bara Biggi hennar Stellu vorum bara á
spjallinu, hringdum í Hjalla, spjölluðum við hann & svo fórum
við Biggi út á skokkið, lentum í brjálægðum hundi ... sem var svo
sannarlega með hundaæðið.. þessi ljóti á Sjávarborg... tökum kylfu
með næst biggi!!=O... fórum svo í pottinn með bjartar væntingar..
sem svo brugðust =/... hann var bara svona 20° :/.. en jæja.. maður
tók bara heita strtu í staðinn .. kom svo bara hingað heim &
er að hlusta á :
.: Þú fullkomnar mig - Sálin
:.
...falllegt lag
..
En ég sagði hérna í upphafi að
þetta yrði stutt.. er hætt þessu núna .. bææ ;** & GÓÐA NÓTT
<3<3
E L I
N A R D I S <3
»
28.06.2007 13:02:56 / elin ardis

Töff mynd!
Vikan að verða búin & ég ætla bara svona að
blogga um hvað í henni hefur skeð! mánudagurinn ? .. ég vaknaði um
hálf sjö leytið við einhverja öskrandi kjellingu að syngja í
símanum hans Gunnars! mér brá ekkert smá.. & er undrandi á að
vera á lífi! En allavega.. Gunnar fór með Ingva & Guðbjörgu
uppí Blöndu.. að vinna & ég bara sofnaði aftur.. =).. hvað
annað kom til greina maður!!.. um kvöldið var æfing... það stóð á
netinu hálf níu.. þannig ég bara.. yess.. get sofið til átta &
farið svo á æfingu.. en allt kom fyrir ekki !! ókei, ég vaknaði um
átta leytið.. en þá byrjaði æfingin hálf átta!! og æðislegt!.. jæja
é gat þá bara gleymt þessu!
Þriðjudagurinn var frekar leiðinlegur minnir
mig... allavega var ég að vinna til átta... en fór svo bara til afa
á hestbak.. skelltum okkur með allt rautt.. eða fimm rauð hross í
smá túr.. afi bara vill ekki annað en rautt.. hann hlýtur að hafa
verið rauðhærður?!.. jah, maður spyr sig! hann er nú bara gráhærður
núna, þannig ég veit ekkert hvernig hárið hans var :] En svo kom ég
nú bara heim & lagðist uppí sófa undir sæng.. en þá bjölluðu
þeir Hjálmar & Birgir.. & við rúntuðum til hvað? .. hálf
tvö.. það bættust nú alltaf einhverjir nýjir við.. þar á meðal Jón
Anton.. Sigurlína & Halla Mjöll ..
FYRSTA MYNDIN SEM TEKIN ER AF
OKKUR GUNNARI SAMAN ;'D .. & við höfum þekkst & já, verið
meira en vinir öðru hvoru í tvö ár !! hahh!=P .. ; í útilegu í
sleðaúlpunum  ;
Miðvikudagurinn?... fínn dagur jú? .. en ekkert
spes gerðist.. & ég var að vinna til átta aftur... skrapp svo á
rúntinn með Hannesi, Smára & Bigga um kvöldið... ;] reyndum að
leita upp löggubílinn, sem gekk ekki, þangað til að við áfumst upp
um álf tvö leitið & maður fór heim að sofa [zzzz] 
Núna.. er klukkan nákvæmlega 13 ;
09 .. & ég er að spá í að fara upp & fá mér smá í gogginn
=).. er orðin svöng.. ég komst ekkert heim í hádegjinu því mamma er
á blönduósi, og pabbi í héraðsdal!! Svo ætla ég að skella mér í
klikppingu & litun eftir vinnu =)... það verður spennandi hvað
kemur útúr því!! =D..
En vá, skemmtilegt blogg, búin að
tala hérna um líf mitt siðustu daga, kanski ömmu fynnst gaman að
lesa þetta.. mér bara leiðist svo óendanlega mikið!! :]
..
Best að ljúka þessu svo með alveg
svaðalegum myndum!

Hilsen Elín Árdís 
»
25.06.2007 17:33:59 / elin ardis
Góðan dagjinn! =)
..
Jæja, höldum þessari síðu lifandi
& skellum inn bloggi .. svona dagar í vinnunni eru BESTIR..
þegar ekkert er að gera.. & maður er ´buin að raða öllu sem
hægt er að raða í hillur & maður situr bara & tjillar í
tölvunni 
En helgin =D=D ..
hún var fjörug.. byrjaði með föstudegjinum, þar sem að ég fóir með
Hjörleifi & Söru á Hofsós á abba-show.. þar sem Lína á Kúskerpi
& Kolla slógu í gegn =P
Svo fórum við bara
heim... eða þau til Árna Birgis & ég til Þóreyjar, hitti þar
Línu & Bigga að auki .. við löbbuðum niður í hlíðó þar sem
hálfir skagfirðingar & þar með hinn helmingurinn húnvetningar
komu ...eða bara Gunnar & Höskuldur en Skuldur stoppaði nú
stutt við & keyrði aftur heim, en skildi hann bróður sinn eftir
við Gunnar fórum svo bara heim & horfðum á einhverja
spólu... eða hann, ég sofnaði ansi fljótt!! 
Vaknaði svo á
björtum & hvössum laugardagsmorgunin & bara.. andskotinn,
vinna!! fór í vinnuna.. það var fínt & svaf svo fram að
kvöldmat eða e-ð.. eða þangað til að við Gunnar fórum í svaðalegan
fjórhjólatúr skruppum svo á hofsós & þar byrjaði fjööörið =D
Rifum tuskuhúsið í sundur & gerðum það svona nokkuð
heimilislegt & svo komu strákarnir & ragnheiður, þórey var
auðvitað á svæðinu þegar við komum, það var ekki að spyrja að því
svo kom Hjörleifur & Elli mætti.. með held ég Sigurjón í
eftirdragi ..
En svo var bara
ballið, það var nú skemmtilegast af öllu þarna Biggi náttúrulega
óstjónlega ofvirkur á tímabilum .. Sindri mjög sprækur já, hvar
var Palli?.. örugglega í hjólasamræðum, Hannes klikkaði ekki, við
vorum samt frekar ósamstæð þarna í hreyfingum.. haha :'D
Gunnar var þarna & var ekki þarna & Ragnheiður, jú
hún var kát... ég tók líka einn dans við Óskar Pál.. haha,það var
gaman :'D.. við hjölli tókum dans með glas í höndunum... héldum sem
sagt á því saman þangaað til að allt helltist yfir mig & svo
frv! 
Sunnudagurinn...
8-).. Pabbi minn? .. ; ebba, af hverju léstu mig drekka svona mikið
'' HAAHHAH!! hann var slaaaakur það sem eftir dagsins var.. mamma
auðvitað vaknaði klukkan ellefu & vakti alla.. þá rumlaði uppúr
Hjörleifi ; mamma, af hverju fórstu ekki í sund eða e-ð!! mamma ;
það er ekki sundlaug hérna á hofsósi =D .. hjölli ; þá gastu bara
farið í Hóla!! ..
haha snilld
..
En svo fór ég í
fermingu... kom heim, lagði mig & svo skruppum við Gönnz í
reiðtúr ...
En er að verða
búin að vinna... byeee :*
-Elín Árdís
sem fer að drullast til að setja inn myndir!!
»
21.06.2007 16:49:00 / elin ardis
Hææ !! Er kominn tími á blogg eða hvað?? ..
held það bara!
Sara mása hefur ekkert að gera í vinnunni, þannig
að ég er í leiðinni að stytta henni stundir morgundagsins! en
þetta verður bara stutt blogg.. er í vinnunni að tjilla bara!!

En síðasta helgi var fjörug, skruppum á akureyri,
tókum sunnudagsrúnt í lýtó & fengum okkur ís & burger í
varmó! =D.. þið getið lesið nánar um þetta á blogginu hjá Ragnheiði
danadrollu ;]]
En allavega.. þarf ég að drulla mér í að setja
myndir frá síðustu helgi hingað inná.. þær eru slattanokkrar
8-)
En ... já! margt hefur drifið á daga..
bæði slæmt & gott.. en aðalega í leiðinlegri kantinum! & ég
held að fréttir morundagsins setji alveg punktinn yfir I-ið á
þessari viku! vona samt ekki!! ..
En Hjalli gamli minn tætti gætlega á
sér höndina á þriðjudagjinn með hérna... slípirokk.. ég sá
hann bara allann reifaðann í hvítum sárabindum þegar ég var
hérna að hjálpa Jódísi vinkonu minn &
fyrrverandi nágranna í mánlingunni & fékk ágætis sjokk!! nett
sjokk já!.. En þetta grær vonandi vel & allt þannig
:]
LOL fyrir Viktor!! 
En gærdagurinn var leiðinlegur =/.. Því
Sigurlína, Þórey Elsa & Hjálmar misstu afa sinn heitelskaðan
:'( Guð veri með ykkur í gegnum þetta erfiða tímabil & ég
samhryggist ykkur öllum innilega mikið... <3 ...
...dagurinn í dag.. er rólegur
yfir höfuð hérna í vinnunni, enda kominn tími til... að maður geti
bara sest niður & bloggað ... enda kominn tími til!
Í gær var hittingur hjá Gauja...
freeeeKar gaman =D spiluðum trevjar parsjút ... borðuðum
jarðaber,ananas.. epli & fleira góðgæti í appelsínusjúkkulaði
=) & svo kom kjeellinn með birgðir var snakkpokum, sikurpúðum
& lakkrís.. hann er ekki að fara að búast við góðum árangri í
útburði á eftir.. 
En ég ætla að ljúka þessu
núna...fer að gera nýtt mánaðarins, vikunnar & fleira drasl!
& auðvitað setja myndirnar inn :]..
Bið að heylsa þér
kauði!
-Elín Árdís!
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|